Dahl með hvítlauk

Innihald

3 msk. smjör

1 msk. olía

1 laukur, saxaður smátt

1-2 chili-aldin, fræhreinsuð og smátt söxuð

1 msk. ferskt engifer, rifið fínt

2 1/2 dl linsubaunir

9 dl vatn

1 grænmetisteningur

4-6 hvítlauksgeirar, maukaðir

1 tsk. kumminduft

1 tsk. kóríanderduft

gróft sjávasalt

nýmalaður svartur pipar

1 dós niðursoðnir tómatar, hakkaðir

safi úr 1/2 límónu

hnefafylli ferskur kóríander, saxaður

Aðferð

Hitið smjör og olíu á pönnu og steikið lauk, chili og engifer í u.þ.b. 10 mín. Sedtjið þá baunir saman við ásamt vatni og grænmetisteningi og látið metta malla saman í u.þ.b. 50 mín. Bætið hvítlauksmauki, kummin og kóríander út í og bragðbætið með salti og pipar. Látið malla áfram í 10 mín. og bætið þá tómötum og límónusafa saman við og sjóðið þar til baunirnar eru maukaður. Bragðbætið með salti og pipar eins og þarf og bætið við límónusafa eftir smekk. Berið fram með ferskum kóríander og steiktri laukblöndu (sjá uppskrift).

Athugasemdir

4-6 manns

Flokkar
Grænmetisréttur Kvöldmatur
Skoðanir