600-800 g lúða eða ýsa
7 dl mysa
5 dl vatn
1 tsk salt
100 g sellerí
100 g blaðlaukur
4 gulrætur
1 laukur
70 g smjör
1 tsk. karrí
2 msk. hveiti
1/4 tsk. "season all"
1-1 1/2 tsk. fiskikraftur
1/4 l rjómi
3 eggjarauður
200 g rækjur
Sjóðið fiskinn í blöndu af mysu, vatni og salti. (Ath. að ofsjóða ekki.) Saxið sellerí og lauk, skerið blaðlauk í þunnar sneiðar. Látið grænmetið og laukurinn krauma í smjörinu í u.þ.b. 5 mín. í hveitið yfir grænmetið í pottinum og bakið upp með 1 lítra af fiskisoði.
Bragðbætið með fiskikrafti og "season all" og látið rjómann út í og hitið í suðu. Hrærið eggjarauðurnar í skál og jafnið súpunni út í, hægt fyrst. Látið súpuna aftur í pottinn og setja rækjurnar, gulræturnar og beinlausan fiskinn út í. Hitið þannig að fiskurinn sé vel heitur en sjóðið ekki. Berið fram með volgu smábrauði og smjöri. Svona súpa er mjög góð sem sjálfstæður réttur.
.