Möndlugrautur

Innihald

1/2 pakki hrísgrjón (250 g)

1 l nýmjólk

1 msk. sykur

1/2 tsk. vanilludropar

1 1/2 l rjómi

2 pokar litlar makkarónukökur

2 pk. möndlur (ca 100 g).

 

 

Aðferð

Leggið hrísgrjónin í bleyti í kalt varn í einn sólarhring. Hellið vatninu frá og sjóðið grjónin í mjólkinni við hægan hita í eina og hálfa klst. Hrærið í með stuttu millibili og hafið ekki lok á pottinum. Hrærið í grautnum á meðan hann er að kólna svo að ekki myndist skán ofan á honum. Hann þarf að vera vel kaldur þegar þeytti rjóminn er hrærður saman við. Stífþeytið rjómann, látið vanilludropana, sykurinn og möndlurnar, sem skornar hafa verið í fjóra hluta, út í og munið eftir heilu möndlunni. Blandið nú soðnu hrísgrjónunum út í rjómann, hrærið mjög varlega í með grófum gafli svo að rjóminn haldi sér.

Grauturinn er borinn fram í glærri skál. Raðið makkarónukökunum á botninn. Síðan er sett lag af grautnum og þannig koll af kolli þar til 4 cm eru upp að brún. Þá er skálin skreytti með apríkósum, sem hafa verið skornar í þunnar sneiðar, jarðaberjum og makkarónukökum. Möndlum er stráð ofan á allt saman.

Athugasemdir

Muna að gera aðeins einfalda uppskrift

Flokkar
Annað Eftirréttur
Skoðanir