Súkkulaðismákökur með valhnetum Uppskriftir mömmu

Innihald

150 gr. Smjör (lint)

100 gr. Sykur

100 gr. Púðusykur

1 egg

 75 gr.valhnetur , gróft hakkaðar

75 gr. Ljóst súkkulaði

75 gr. Dökkt súkkulaði

½  vanillustöng eða  msk. Vanillusykri

1 tsk. Natron

200 gr. Hveiti

 

Aðferð

180° í 6-8 mín.

Blandið saman hveiti, natroni og vanillukornum úr stöng. Setjið allt nema súkkulaðið og hneturnar í hrærivél  og blandið saman þar til degið fer að hanga saman. Bætið þá hnetunum og súkkulaðinu í vélina og blandið. Takið litlar klípuraf deiginu og raðið með passlegu millibili á bökunarplötu.

Flokkar
Bakstur
Skoðanir