Innihald
- 400 g laukur
- 70 g smjör
- 1 msk hveiti
- 1 l kjúklingasoð
- 3 dl hvítvín, helst þurrt
- 4 tímían greinar
- 3 lárviðarlauf
- steinselja, magn eftir smekk
- salt og nýmalaður pipar
- baguette brauð
- rifinn ostur
Aðferð
- Afhýðið lauk og skerið í þunnar sneiðar.
- Steikið laukinn upp úr smjörinu, því lengur sem þið steikið laukinn því betri verður súpan. Hann á þó alls ekki að brenna heldur verða glær og gullinbrúnn.
- Stráið hveitinu yfir laukinn og hrærið í.
- Hellið soðinu og hvítvíninu saman við og látið sjóða saman.
- Bætið kryddjurtum út í og leyfið henni að malla í 30 - 50 mínútur til viðbótar.
- Hellið súpunni í skálar sem þola að fara inn í ofn, leggið eina til tvær baguette sneiðar yfir og stráið rifnum osti yfir og bakið við 180°C í ofni eða þar til osturinn er orðinn gullinbrúnn.
Berið súpuna strax fram og njótið
Athugasemdir
Muna - gera þetta að ekki nauðsynlegum reit
Flokkar
Skoðanir